Þjónusta í hæsta gæðaflokki

Við leggjum okkur alla fram um að veita þér fyrsta flokks þjónustu fyrir MG. Slakaðu á og njóttu sérsniðinna þjónustupakka með sveigjanlegri fjármögnun og aðgangi að stafrænu þjónustuskránni okkar.
Yfirlit yfir kostina
Vottaðir MG tæknimenn
Bíllinn þinn fær þjónustu samkvæmt ströngustu stöðlum frá tæknimönnum sem hafa fengið þjálfun hjá MG.
Viðurkenndir MG varahlutir
MG söluaðilar nota alltaf viðurkennda MG varahluti sem eru hannaðir og prófaðir samkvæmt okkar ströngustu stöðlum.
Stafræn þjónustuskrá
Allir MG þjónustuaðilar skrá þjónustu bílsins í netgagnagrunn okkar, svo við getum fylgst með því að bíllinn þinn fái þjónustu á réttum tíma og minnt þig á næstu þjónustuskoðun.
Vegaaðstoð
Við hverja þjónustuskoðun hjá MG þjónustuaðila bætum við 12 mánuðum við MG vegaaðstoðina sem þú hefur haft frá fyrsta degi**. Þú nýtur hennar út 7 ára ábyrgðartímann.

6 merki um að bíllinn þinn þurfi þjónustu
Kynntu þér stuttu leiðbeiningarnar okkar um það hvenær bíllinn þinn gæti þurft þjónustu utan reglulegra þjónustuskoðanna.

Erfiðleikar við að ræsa vélina
Ef bíllinn þinn á í erfiðleikum með að fara í gang gæti það verið vegna bilaðrar rafhlöðu eða ræsirs. Oftast nær er það þó vandamál með kerti eða eldsneytissíu eða jafnvel eitthvað eins smávægilegt og óhrein kertasnúrur. Að laga þetta snemma hjálpar til við að koma í veg fyrir að það þróist í alvarlegri vandamál.

Viðvörunarljós loga í mælaborðinu
Flestir bílar eru með viðvörunarljós í mælaborði sem láta ökumenn vita af vandamálum í bílnum. Þetta geta verið vandamál með bremsur, vél, olíu eða loftpúða. Gult viðvörunarljós þýðir yfirleitt að eitthvað sé að, en ekki eitthvað sem kallar á tafarlaus viðbrögð. Rautt viðvörunarljós þýðir hins vegar að þú ættir að láta vélvirkja skoða bílinn eins fljótt og auðið er.

Þú finnur óvenjulega lykt
Finnir þú brunalykt eða sérð reyk undan vélarhlífinni gæti það þýtt að olía leki á heita hluti og gæti það valdið alvarlegum skemmdum ef ekki er gripið inn í. Alltaf er ráðlagt að leita til fagaðila ef þú finnur skrítna lykt frá olíunni eða bílnum sjálfum.

Bíllinn titrar í akstri
Ef mikill titringur finnst í stýrinu eða um allan bílinn í akstri gæti það bent til þess að dekkin séu úr jafnvægi eða ekki nógu pumpuð — þótt slitnir höggdeyfar geti haft sömu áhrif. Að aka með ópumpuð dekk getur valdið því að bíllinn ofhitni og dekk springi, svo það er mikilvægt að láta skoða þau.

Bíllinn gefur frá sér undarleg hljóð
Ef þú heyrir skrítin hljóð í bílnum, t.d. marr, ískur eða væl, gæti það verið vísbending um vandamál. Málið gæti verið eitthvað einfalt eins og slitnir bremsuklossar, en gæti einnig bent til alvarlegri vandamála.

Þú manst ekki hvenær bíllinn fékk þjónustu síðast
Reglulegar þjónustuskoðanir eru mikilvægur hluti af því að halda bílnum í góðu lagi. Ef ekkert er að gert getur olían byrjað að rýrna ef hún er of lengi í vélinni og það veldur tæringu — jafnvel þótt þú akir ekki mikið.
Dreifðu viðhaldskostnaði bílsins

MG Þjónustuáætlun
MG Þjónustuáætlunin gerir þér kleift að dreifa kostnaði við viðhald bílsins svo þú þurfir ekki að hafa áhyggjur af óvæntum reikningum í framtíðinni. Allir okkar bílar koma með sérsniðnum þjónustupökkum sem eru í boði fyrir allar gerðir, óháð aldri eða akstri. Sveigjanlegir greiðslukostir eru undirstaða hverrar þjónustuáætlunar og þjónusta hvers MG er í höndum þjálfaðra sérfræðinga okkar — fyrir fullkomna hugarró.